Fréttir
29.10.09
Nýr hópur af stað 5. og 6. nóv. nk.
Þá hefur tímasetning verið fest niður fyrir hóp 9 en við förum af stað með þann hóp þann 5. og 6. nóvember nk. Aldrei þessu vant verðum við ekki á hefðbundnum stöðum þessa upphafsdaga en erum alltaf sveigjanlegar og lítum á nýja staði sem spennandi tækifæri og áskoranir... enda verðum við ekki á síðri stöðum þ.e. byrjum nú í Samgönguráðuneytinu og svo í Háskólanum í Reykjavík.
Hlökkum til að taka á móti nýjum hópi en þátttakendur sem höfðu skráð sig hafa þegar fengið sendan tölvupóst með nánari upplýsingum. Hópurinn er fullur en oft verða forföll á síðustu stundu og því möguleiki að hægt verði að bæta við.