Nú styttist óðum í að hópur 16 fari af stað í Nýttu Kraftinn en þessa dagana er verið að ganga frá öllum praktískum málum varðandi fundarstaði til að hægt verði að gefa upp nákvæmar upplýsingar varðandi stað og stund.
Skráning í hópinn er í fullum gangi og fjölmargir komnir á lista. Viðkomandi aðilar fá sendan tölvupóst á allra næstu dögum með öllum upplýsingum.
Áhugasamir hvattir til að skrá sig strax með því að fara inn á skráningarformið (ýta á hnappinn "smelltu hér" vinstra megin á síðunni). Árangur þátttakenda í Nýttu Kraftinn í að komast aftur inn á vinnumarkaðinn er mjög góður, um 75% þátttakenda í hverjum hópi hafa markað sér skýra framtíðarsýn áður en að 3ja mánaða ferlinu lýkur.