Skráðu þig NÚNA í hópinn sem byrjar í lok janúar, fimmtudaginn 26. og föstudaginn 27. janúar (hist 2 daga í röð). Þegar hefur fjöldi fólks skráð sig og bíður eftir að Nýttu Kraftinn var af stað nú á nýju ári. Hægt er að skrá sig með því að smella á appelsínugula hnappinn vinstra megin á forsíðunni en þannig kemstu inn á skráningarformið.Tölvupóstur verður sendur út til þeirra sem hafa skráð sig með öllum nánari upplýsingum um fyrirkomulagið auk þess sem óskað verður eftir staðfestingu á mætingu.
Fundartíminn verður frá kl. 10-15 þessa tvo daga. Auk þess að fara í gegnum hugmyndafræði Nýttu Kraftinn og veita þátttakendum markvissan innblástur í atvinnuleitinni fáum við, María og Sigríður, góða gesti í sama tilgangi þ.e. Önnu Sigríði Pálsdóttur prest í Dómkirkjunni, Grétu Matthíasdóttur náms- og starfsráðgjafa í HR og Sigurð Þórðarson verkfræðing.
Nýttu Kraftinn ferlið nær yfir 3 mánuði en hópurinn hittir okkur 5 sinnum á því tímabili, margt og mikið gerist hins vegar á milli fundanna. 3ja samvera hópsins verður seinni partinn í febrúar.
Skráðu þig strax, þú hefur engu að tapa en allt að vinna í leiðangri þínum að komast inn á vinnumarkaðinn á ný. Árangur þátttakenda í Nýttu Kraftinn hefur verið ótrúlega góður en um 75% þátttakenda eru almennt komnir í nýtt starf, í nám eða að stofna fyrirtæki um það leiti sem það útskrifast úr Nýttu Kraftinn.
Athugaðu réttindi þín hjá stéttarfélaginu þínu, VMST, VIRK eða félagsþjónustu sveitarfélagsins þíns en flestir þátttakendur eru styrktir af fyrrgreindum aðilum til þátttöku hjá okkur þó margir greiði sjálfir.
Hlökkum til næsta hóps - vonumst til að fá sem flesta með :)
kv. María Björk & Sigríður Snævarr