Fréttir
17.03.11
Nýr hópur líklega í gang í byrjun apríl - skráning í gangi
Nú stefnir allt í að næsti hópur í Nýttu Kraftinn fari af stað hjá okkur í byrjun apríl. Nákvæm tímasetning verður gefin út þegar allt liggur fyrir í þeim efnum en eftir er að hnýta nokkra lausa enda.
Skráning í næsta hóp er þegar hafin hér á heimasíðunni og hvetjum við alla áhugasama einstaklinga sem vilja taka atvinnuleitina fastari tökum til að skrá sig sem fyrst. Tölvupóstur verður svo sendur út til þeirra sem eru á biðlista hjá okkur með öllum nánari upplýsingum.
Bestu kveðjur,
María Björk & Sigríður Snævarr