Smelltu hér og skráðu þig

 

Allra Átta vefsíðufyrirtæki styrkir þessa vefsíðu. www.8.is

EINSTAKLINGSNÁMSKEIÐ fyrir atvinnuleitendur

Leiðbeinandi: María Björk Óskarsdóttir / sími 861 8112 / nyttukraftinn@nyttukraftinn.is

Einstaklingsmiðað námskeið fyrir atvinnuleitendur sem vilja styrkja sig og ná meiri árangri í atvinnuleitinni og fyrir fólk á vinnumarkaði sem vill efla sig í starfi. Það er byggt á aðferðafræði Nýttu kraftinn og er unnið með bókina og fleiri kennslugögn að vopni. Ráðgjöfin sem er persónuleg og sérsniðin er í bland fundir og fjarþjálfun (tölvupóstar/skype/sími) og innifelur leiðsögn, hvatningu, endurgjöf, aga og æfingar til að efla sjálfstraustið og styrkja eigin markaðssetningu í atvinnuleitinni. Þátttakendum er veitt speglun á eigin gögn, hugmyndir og vangaveltur auk þess sem gefnar eru nýjar hugmyndir og fjölmörg ráð fyrir viðkomandi að vinna með. Atvinnuleitendur búsettir á landsbyggðinni geta auðveldlega nýtt sér námskeiðið.

Námskeiðið kostar 75.000 kr. og er miðað við að það klárist á 3-6 vikum allt eftir hraða hvers og eins. Nýttu kraftinn kennslugögn eru innifalin í námskeiðisgjaldi og er veitt útskriftarskírteini í lokin.

Þátttakendur eru hvattir til að kanna réttindi sín hjá stéttarfélaginu sínu, VMST, STARF, VIRK eða atvinnuþjónustum sveitarfélaga varðandi stuðning til þátttöku í námskeiðinu.

Uppbygging námskeiðisins:

  • Undirbúningur og afhending gagna - Fjarþjálfun (1 klst)
    • Þátttakandi sendir ferilskrá og dæmi um kynningarbréf ef slík gögn eru til
    • Samtal og/eða viðkomandi svarar nokkrum spurningum um stöðu mála og helstu áskoranir þá stundina og sendir í tölvupósti
  • Undirbúningur atvinnuleitar og endurgjöf á gögnin - Fundur (2 klst)
    • Nýttu kraftinn aðferðafræðin og notkun bókarinnar
    • Opnað á sjálfskoðun og styrkleika, ástríðu og eldmóð
    • Eru fleiri stoðir og hver er nýtanlega færnin?
    • Kennsla í gerð ferilskrár sem nær í gegn og selur
    • Kennsla í gerð kraftmikils kynningarbréfs
    • Endurgjöf á ferilskrá og kynningarbréf þátttakanda
    • Næstu skref og heimaverkefni
  • Veitt endurgjöf á ferilskrá og kynningarbréf  - Fjarþjálfun (1 klst)
    • Þátttakandi sendir endurgerða ferilskrá, kynningarbréf og eigin styrkleika með rökstuðningi til skoðunar
    • Veitt í framhaldi endurgjöf á ferilskrá og kynningarbréf
    • Afhent verkefni vegna undirbúnings fyrir atvinnuviðtöl
  • Undirbúningur atvinnuviðtala, tengslanet og frumkvæði - Fundur (2 klst)
    • Umræður um atvinnuviðtöl og gerðar atvinnuviðtalsæfingar
    • Kortlagning tengslanetsins og tækifæra á vinnumarkaðnum
    • Áskoranir, markmið og mikilvægi frumkvæðis
    • Markmiðasetning og heimaverkefni
  • Staðan metin og framhaldið skipulagt - Fundur eða fjarþjálfun (1 klst)
    • Loka endurgjöf á ferilskrá og kynningarbréf ef þörf er á
    • Speglun á það sem er efst á baugi hjá viðkomandi þá stundina
    • Næstu skref - Plan A og Plan B

Nýjustu fréttir
VILTU EFLA ÞIG Í STARFI, FÁ NÝJA ÁSKORUN EÐA NÝTT STARF? Hafðu samband eða skráðu þig hér á síðunni...
Gaman að segja frá því að einstaklingsmiðaða...
Endurtökum námskeiðið Nýttu kraftinn og vertu öflugri...