Smelltu hér og skráðu þig

 

Allra Átta vefsíðufyrirtæki styrkir þessa vefsíðu. www.8.is

Bókin Nýttu kraftinn - hugmyndir, ráð og hvatning fyrir atvinnuleitendur og alla þá sem leita sér að nýjum tækifærum kom út á vegum Forlagsins í mars 2013 og fæst nú í öllum helstu bókabúðum landsins og í netverslununum www.forlagid.is og www.eymundsson.is

Ertu í atvinnuleit eða á tímamótum og leitar þú nýrra tækifæra? Vantar þig hugmyndir, hvatningu og ráð til að ná árangri við breyttar aðstæður?
 
Markmið Nýttu kraftinn er að hjálpa fólki í atvinnuleit að standa betur að vígi í samkeppni á vinnumarkaði og þeim sem þurfa að finna tíma sínum og kröftum nýjan farveg . Fæstir ganga nú að nýju starfi sem vísu heldur þarf að beita markvissum aðferðum til að koma sér á framfæri . Gildir einu hvort einstaklingar eru atvinnulausir þá stundina, eru í starfi og vilja breyta til eða láta drauma sína rætast. Sama má segja um þá sem ætla aftur inn á vinnumarkað að námi loknu, eftir veikindi eða flutning til landsins.
 

Í bókinni er bent á fjölmargar leiðir við atvinnuleitina og farið ítarlega í ráðningarferlið, meðal annars með sjálfskoðun, styrkleikaæfingum, gerð ferilskrár og kynningarbréfa sem og æfingum og ábendingum fyrir atvinnuviðtöl. Áhersla er á frumkvæði, tengslanet, vellíðan og framtíðaráætlanir. Aðferðir höfunda hafa reynst atvinnuleitendum, aðstandendum og þeim sem standa frammi fyrir starfslokum vegna aldurs, árangursríkar.

Bókin er praktísk sama i hvaða sporum lesandinn stendur. Leitast er við að taka heilstætt á málum, í henni eru fjölmargar reynslusögur sem fjölmargir munu án efa samsama sig við auk verkefna og sýnishorna sem gagnleg bæði við sjálfskoðun og í faglegri atvinnuleit.

BÓKIN - EFNISYFIRLIT

 Í UPPHAFI SKYLDI ENDINN SKOÐA

·         Hverjar erum við og hvað viljum við upp á dekk?
·         Hver er boðskapurinn?
·         Í hvaða sporum stendur þú?
·         Samkeppnisforskot
·         Inn á völlinn aftur
·         Afstaða er til alls fyrst
·         Þegar starfsævi lýkur
·         Njótum augnablikanna
FRÁ SORG TIL SÁTTAR OG SÓKNAR

·         „Mér var sagt upp“

·         Það ræður enginn reiðan mann í vinnu
·         Hvernig líður þér, hvar ertu í sorgarferlinu?
·         Láttu alla vita
·         Óþægilega spurningin – hver er þín?
·         Rússíbani atvinnuleitarinnar
·         Vertu með þeim sem eru á leiðinni upp

VERKFÆRAKISTAN

·         Hver dagur sem vinnudagur væri
·         Markviss tímastjórnun og skráning
·         Hugarflug með sjálfum sér
·         Markmiðssetning – meiri sjálfsagi
·         Stundaskrá eða tóm vika fram undan?
·         Sönnunargögnin – setja orð á athafnir!
·         „Mappan“
·         Sjálfskoðun og nýtanleg færni
·         Styrkleikar – hér er ég og fyrir þetta stend ég
·         Spurningaregn
·         Ferilskrá er eitt – ferilskrá sem selur er annað
·         Ráð við gerð góðrar ferilskrár
·         Kynningarbréf – þau eru bráðnauðsynleg
·         Að skrifa gott kynningarbréf
·         Atvinnuviðtalið – miklu meiri árangur hjá þeim sem æfa sig
·         Forðumst óþarfa streitu – atvinnuviðtalið sjálft
·         Launaumræðan, hvenær er hún tímabær?
·         Ítarefni – verkefni og sýnishorn:
Stundaskrá, vottun, sjálfskoðun, styrkleikar, draumastörf, ferilskrár, kynningarbréf, æfingar og ábendingar fyrir atvinnuviðtöl

FARIÐ ALLA LEIÐ

·         Fjölbreytni er farsæl
·         Gríptu boltann
·         Ertu heilshugar í atvinnuleitinni?
·         Hver er ástríðan þín?
·         Fjórar leiðir út úr atvinnuleysi – hvaða leið velur þú?
·         Fleiri stoðir undir lífið
·         Atvinnuleitin – hvar skal leita fanga?
·         Vellíðan
·         Að hefja samræður
·         Tengslanetið – félagsauðurinn
·         Drauganetin – áttu mörg?
·         Tengslanet – ekki klíka!
·         Að styrkja tengslin með því að beita sér
·         Taktu málin lengra – fáðu þér mentor!
·         Úthald og aðgerðaráætlun – langtímaatvinnuleysi er bara orð
·         Ekki gefast upp
·         Þriðji aldurinn
·         Að blása lífi í gamlar glæður
·         Ítarefni – spurningalistar og verkefni:
tengslanet, samtalstækni, stöðutaka
LOKAORÐ
GAGNLEGAR VEFSLÓÐIR
HEIMILDIR
 
ÞAKKIR
 
 
 
Nýjustu fréttir
VILTU EFLA ÞIG Í STARFI, FÁ NÝJA ÁSKORUN EÐA NÝTT STARF? Hafðu samband eða skráðu þig hér á síðunni...
Gaman að segja frá því að einstaklingsmiðaða...
Endurtökum námskeiðið Nýttu kraftinn og vertu öflugri...