Nú er skráning í fullum gangi fyrir næsta Nýttu Kraftinn hóp sem byrjar hjá okkur 13. og 14. apríl en upphafsdagarnir eru alltaf 2 í röð frá kl. 10-15.
Þegar er búið að senda öllum sem voru á biðlista tölvupóst með nánari upplýsingum og óskað eftir staðfestingu því eingöngu takmarkaður hópur kemst að í hvert sinn.
Ef þú vilt taka atvinnuleitina þína föstum tökum og fá nýjar & kraftmiklar hugmyndir í þeim efnum skráðu þig þá strax á skráningarhnappnum vinstra megin á forsíðu heimasíðunnar okkar - upplýsingapóstur verður sendur út frá okkur beint til þín í kjölfar skráningar.
Þátttakendum í Nýttu Kraftinn hefur almennt gengið mjög vel og litið á Nýttu Kraftinn sem sparkið í rassinn til að komast áfram auk þess að kynnast og fá styrk frá nýju fólki í sömu sporum.
Hlökkum til að sjá þig,
Bestu kveðjur,
María Björk & Sigríður Snævarr