Smelltu hér og skráðu þig

 

Allra Átta vefsíðufyrirtæki styrkir þessa vefsíðu. www.8.is

Fréttir
22.01.14
Nýr hópur byrjar 29. janúar - skráðu þig strax!
Viltu aðstoð til að ná betri árangri í atvinnuleitinni? Nýttu kraftinn námskeiðin hafa virkað afar vel fyrir einstaklinga sem vilja fá hvatningu og stuðning til að vinna markvisst í því að skapa sér ný tækifæri. Yfir 1000 manns hafa tekið þátt í Nýttu kraftinn frá upphafi. Skráðu þig strax í næsta hóp en við byrjum miðvikudaginn 29. janúar með fyrsta hóp ársins. Námskeiðið nær að vanda yfir 8 vikur með 4 samverum frá kl. 10-15 með stjórnendum þ.e. fyrst 2 dagar í röð þ.e. 29. og 30. janúar, síðan 1 dagur eftir miðjan febrúar og svo 1 dagur í lok mars. Þess á milli vinnur hver og einn í sínum málum auk þess sem hópurinn hittist á uþb 2 tíma millifundum 1 sinni í viku. Allar nánari upplýsingar um Nýttu kraftinn ferlið er hér á síðunni sem og "skráningarhnappurinn". Þátttökugjald fyrir ferlið í heild sinni, námsgögn, Nýttu kraftinn bókina og veitingar í samverunum fjórum er 60.000 kr. VMST,STARF,VIRK, stéttarfélög, atvinnu- og félagsþjónustur sveitarfélaga hafa styrkt sína félagsmenn/skjólstæðinga sem eiga til þess réttindi ýmist að fullu eða hluta til. Hlökkum til að taka á móti sem felstum sem vilja bretta upp ermar með okkur :) Bestu kveðjur og verið velkomin, María Björk & Sigríður Snævarr
Nýjustu fréttir
VILTU EFLA ÞIG Í STARFI, FÁ NÝJA ÁSKORUN EÐA NÝTT STARF? Hafðu samband eða skráðu þig hér á síðunni...
Gaman að segja frá því að einstaklingsmiðaða...
Endurtökum námskeiðið Nýttu kraftinn og vertu öflugri...