Þriðjudaginn 11. mars byrjar næsti hópur hjá okkur og skráning þegar komin í gang en hægt er að smella á hnapp vinstra megin hér á forsíðunni til að komast inn á skráningarformið. Við hvetjum alla sem vilja taka atvinnuleitina eða leit sína að nýjum tækifærum föstum tökum og drífa sig í næsta hóp.
Allar upplýsingar um fyrirkomulagið þessar 8 vikur sem Nýttu kraftinn ferlið varir er að finna á síðunni okkar. Upphafsdagarnir 2 verða þriðjudaginn 11. mars frá kl. 11.30-16.00 og svo miðvikudaginn 12. mars frá kl. 10.00-15.00.
Sendur verður út tölvupóstur með nánari upplýsingum til þeirra sem skrá sig. Ath að VMST, STARF, VIRK starfsendurhæfing, stéttarfélögin, atvinnuþjónustur sveitarfélaganna styrkja sína félagsmenn/skjólstæðina til þátttöku í Nýttu kraftinn. Nauðsynlegt að kanna réttindi sín og láti vita um fyrirkomulagið vegna greiðslu á þátttökugjaldinu.
Hlökkum til að taka á móti sem flestum,
María Björk & Sigríður Snævarr